Klak - Icelandic Startups í heimsókn í Fab Lab Reykjavík
- 6 minutes ago
- 1 min read
Um daginn fengum við hjá Fab Lab Reykjavík heiðurinn að taka á móti starfsfólki hjá Klak - Icelandic Startups í heimsókn til að sýna þeim hvaða þjónustu og tæki við bjóðum upp á. Við ræddum einnig hvernig við getum sameinað krafta okkar í að styðja sem best við frumkvöðla.
Fengu þau að prófa hvað hægt er að gera í leysiskerunum okkar með því að lasermerkja glös og skera út lyklakippur í plexýgler.
Þetta var ótrúlega skemmtilegt - kærar þakkir fyrir komuna og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs!
Fab Lab Reykjavík er stafræn smiðja með rausnarlega opnunartíma með starfsmanni á vakt til að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda meðal almennings, innan menntastofnana og í atvinnulífinu.






Comments