FabConnectHer Erasmus+ verkefni lokið
- 11 minutes ago
- 1 min read

FabConnectHer: Að styðja stelpur og konur í nýsköpun
Erasmus+ verkefnið FabConnectHer hefur sameinað konur um alla Evrópu til að læra og vaxa á sviði stafrænnar framleiðslu og frumkvöðlastarfsemi. Með vinnustofum, tengslamyndun og hagnýtri reynslu í verkefnastofum hefur verkefnið hjálpað þátttakendum að byggja upp nýja færni og sjálfstraust.

FabConnectHer lagði áherslu á að búa til stuðningsefni og sérstaka áherslu á efni fyrir leiðbenendur til að styðja stelpur og konur í STEAM. Margar skemmtilegar og fræðandi vinnustofur voru haldnar og ný reynsla á óreyndum efniviðum sem við höfðum ekki notað áður í Fab Labinu eins og t.d. laser skera út hitapressaða flöskutappa til að búa til eyrnalokka.

Þökk sé hollustu og góðs samstarfs milli samstarfsaðila, leiðbeinenda og sérstaklega þeim frábæru þátttakendum sem gerðu þessa ferð ógleymanlega, hefur FabConnectHer skapað rými fyrir konur til að tengjast, deila hugmyndum og kanna tækifæri í raunvísindum, tækni, verkfræði og nýsköpun.
Við erum stolt af því að sjá hvernig verkefnið hefur haft jákvæð áhrif, dafnað og hjálpað til við að opna dyr fyrir konur á þessum sviðum.



Comments