Elín Birna leiðir Fab Lab Reykjavík
- 15 hours ago
- 2 min read

Elín Birna Gunnarsdóttir hefur tekið við starfi verkefnastjóra Fab Lab Reykjavíkur. Hún mun stýra daglegum rekstri smiðjunnar og leiða þverfaglegt teymi hennar. Ráðningin er liður í því að efla hlutverk smiðjunnar í íslensku nýsköpunarumhverfi, með áherslu á þróun frumgerða á fyrstu stigum og áframhaldandi uppbyggingu STEM-menntunar.
Elín Birna er með meistaragráðu í vélaverkfræði með áherslu á vöruþróun frá Chalmers University of Technology. Hún býr yfir víðtækri reynslu á þróun nýsköpunarlausna sérstaklega á sviði heilbrigðistækni. Síðast hjá Nox Medical þar sem hún vann að þróun tækja fyrir svefnrannsóknir. Þar tók hún meðal annars þátt í þróun og prófunum á frumgerðum, útgáfu hönnunar- og þróunargagna og uppfærslu á notendaprófanaferlum í samræmi við leiðbeiningar FDA.
Áður starfaði Elín Birna hjá Oticon Medical í Svíþjóð við þróun heyrnartækja sem fest eru í bein, og hjá Dentsply Sirona Implants við hönnun og þróun tannskrúfa. Hún hefur einnig starfað hjá Volvo Powertrain þar sem hún vann að CAD‑hönnun á olíu- og kælikerfum.
„Það er einstakt að starfa á vettvangi þar sem hugmyndir fá að taka á sig mynd og verða að raunverulegum lausnum,“ segir Elín Birna. “Fab Lab Reykjavík gegnir mikilvægu hlutverki í að kveikja áhuga á tækni, gera tæknina aðgengilega og styðja við fyrstu skref nýsköpunar.”
„Við erum afar ánægð að fá Elínu til liðs við Fab Lab Reykjavík,“ segir Þóra Óskarsdóttir, sviðstjóri nýsköpunar hjá FB. „Það er ofsalega spennandi að fá svona reynslubolta í smiðjuna og styrkir okkur verulega í að móta starfsemi smiðjunnar til framtíðar.“
Fab Lab smiðjurnar eru meðal lykilinnviða nýsköpunar á Íslandi og starfa eftir alþjóðlegum gæðaviðmiðum Fab Foundation. Fab Lab Reykjavík hefur á undanförnum árum stutt tugi nýsköpunarverkefna og gegnir mikilvægu hlutverki í þróun frumgerða. Smiðjan er samstarfsverkefni Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Reykjavíkurborgar, Mennta-, og barnamálaráðuneytis og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.



Comments